Nafnleysi á Netinu - Hluti II

zorroÉg skrifaði í síðustu færslu um nafnleysi á netinu og í því samhengi er þessi dómur sem fjallað er um á mbl.is ansi merkilegur.  Það er greinilega mjög erfitt að sanna hvort viðkomandi aðili hafi skrifað hluti sem er skrifað undir "nikki" sem hann hefur stofnað.   Sönnunarfærslan er því ansi erfið í þessum málum ef þessi dómur hefur fordæmisgildi.  

Af mbl.is:

"Héraðsdómur Suðurlands hefur sýknað karlmann af ákæru um að hafa viðhaft ærumeiðandi aðdróttanir eða ærumeiðandi móðganir í garð annars manns á umræðuvef vefsíðunnar vísis.is. Ummælin voru skráð undir netfangi, sem maðurinn viðurkenndi að hafa stofnað en hann neitaði að hafa skrifað á spjallsvæðið. Þótti dómnum ekki sannað að svo hefði verið. "

 Sjá nánar með því að smella á fréttina hér fyrir neðan:


mbl.is Ekki hægt að sanna hver skrifaði á spjallvef
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Elfur Logadóttir

Nei nei, sönnunarfærslan er ekkert svo erfið ef vinnubrögð rannsóknaraðila eru í lagi.

Mér virðist hér sem upphaflegir rannsóknaraðilar hafi ekki haft meiri en svo áhuga á málinu og það hafi leitt til þessarar niðurstöðu. Hefðu þeir haft umferðargögnin til að bera saman við gögn mannsins, þá er ekki víst að neitun hans hefði dugað.

Gagnaöflun í tölvutengdum málum er gríðarlega mikilvæg og mjög tímanæm. Þess vegna er mikilvægt að skilgreina verkferla sem vinna á eftir í hverju einstöku máli, til þess að tryggja að sönnunarfærsla takist. 

Elfur Logadóttir, 21.2.2007 kl. 20:03

2 Smámynd: Sigfús Þ. Sigmundsson

Þakka þér fyrir þessa ábendingu.  Vissi ekki af þessari handvömm rannsóknaraðila...

Sigfús Þ. Sigmundsson, 21.2.2007 kl. 20:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigfús Þ. Sigmundsson
Sigfús Þ. Sigmundsson
Stjórnmálafræðingur frá H.Í. og er á lokasprettinum í MPA námi í sama skóla.

Spurt er

Á Ísland að hefja aðildarviðræður við ESB?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (18.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 1
  • Sl. viku: 15
  • Frá upphafi: 33212

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 15
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband