Föstudagur, 11. maí 2007
Jóhannes í Bónus beitir sér gegn Birni Bjarnasyni
Jóhannes í Bónus er með heilsíðuauglýsingu á bls. 49 í Fréttablaðinu í dag. Þar hvetur hann alla Sjálfstæðismenn í Reykjavíkurkjördæmi Suður að strika yfir nafn Björns Bjarnasonar dóms- og kirkjumálaráðherra. Hann undirstrikar það að hann sé Sjálfstæðismaður en sé á móti mönnum eins og Davíði Oddssyni og Birni Bjarnasyni (hvað þarf eiginlega mikið að ganga á svo menn hætti að kjósa Flokkinn?).
Það verður að segjast að svona heilsíðuauglýsing frá einstaklingi er harla óvenjulegt innlegg í kosningabaráttuna en nú er að sjá hvaða árangur hún ber.
Hér er texti auglýsingarinnar í heild:"Strikið yfir siðleysið
- áskorun til sjálfstæðismanna í Reykjavíkurkjördæmi suður
Í rúm fjögur ár mátti ég að ósekju sitja á sakamannabekk í Baugsmálinu svokallaða vegna óvæginna og ranglátra aðgerða Haraldar Jóhannessens, ríkislögreglustjóra, Jóns H. B. Snorrasonar, saksóknara, og síðast Sigurðar T. Magnússonar, sem var settur í starf Jóns H. B. Snorrasonar eftir að hann var gerður afturreka með málatilbúnað sinn haustið 2005. Nafn mitt var hreinsað með sýknudómi Hæstaréttar Íslands í janúar á þessu ári.
Björn Bjarnason, dóms- og kirkjumálaráðherra, hefur í ræðu og riti varið embættisafglöp þessara manna og hvatt þá til dáða leynt og ljóst. Fram hefur komið í fjölmiðlum undanfarna daga að Björn hyggist skipa Jón H. B. Snorrason í embætti ríkissaksóknara strax að loknum kosningum. Embættisveitingar Björns hafa verið harðlega gagnrýndar á undanförnum árum. Nú keyrir um þverbak og maður hlýtur að spyrja: Hvað skyldi Jón H. B. Snorrason eiginlega hafa á Björn Bjarnason úr því hann hyggst skipa manninn í þetta háa embætti þrátt fyrir allt hans klúður?
Sjálfur hef ég ávallt litið á mig sem sjálfstæðismann þó að ég hafi átt bágt með að styðja flokkinn síðustu árin í stjórnartíð Davíðs Oddssonar. Ég veit að margir sjálfstæðismenn eru sama sinnis og ég í því efni og eiga erfitt með að ákveða sig og þá ekki síst sjálfstæðismenn í Reykjavíkurkjördæmi suður þar sem Björn Bjarnason situr í öðru sæti á lista Sjálfstæðisflokksins. Aðeins eitt ráð er til. Merkið x við D en strikið yfir siðleysið með því að strika yfir nafn Björns Bjarnasonar á listanum.
Jóhannes Jónsson,
kaupmaður í Bónus og sjálfstæðismaður.
JÓHANNES JÓNSSON KOSTAR ÞESSA AUGLÝSINGU SJÁLFUR"
Flokkur: Stjórnmál og samfélag | Breytt 23.5.2007 kl. 15:58 | Facebook
Spurt er
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (2.4.): 0
- Sl. sólarhring:
- Sl. viku: 2
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 2
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bloggvinir
-
malacai
-
godsamskipti
-
agbjarn
-
agustolafur
-
arnih
-
arnith
-
heilbrigd-skynsemi
-
baldvinj
-
kaffi
-
bjarnihardar
-
gattin
-
bryndisisfold
-
davidlogi
-
dofri
-
dst
-
egillrunar
-
esv
-
eirikurbergmann
-
ea
-
feministi
-
freedomfries
-
gummisteingrims
-
gun
-
gunnlaugur
-
haukurn
-
hlynurh
-
maple123
-
tulugaq
-
hrannarb
-
hreinsi
-
ivarb
-
jonthorolafsson
-
jonornm
-
julli
-
kristjanb
-
kristjanmoller
-
maggib
-
graskerid
-
maron
-
nykratar
-
oddgeirottesen
-
palmig
-
runarhi
-
salvor
-
sigmarg
-
safi
-
einherji
-
soley
-
stebbifr
-
kosningar
-
sunnadora
-
svatli
-
saethorhelgi
-
thelmaasdisar
-
tommi
-
vefritid
-
tharfagreinir
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.