Talning á blog.is

countingEinn af þeim "fídusum" sem eru hvað skemmtilegastir hér á blog.is er talning gesta á síðum þeirra sem hér blogga.  Hægt er að bera sig saman við aðra hvað þetta varðar o.sfrv.   Þetta er ekkert aðalatriði en gott er að hafa einhverja hugmynd um hversu margir koma í heimsókn.

Í síðustu viku var ég kominn með yfir 600 heimsóknir þá vikuna þegar ég leit inn einn daginn en þann næsta hafði þeim fækkað um c.a. 50.  Ég varð dálítið hugsi yfir þessu en mér fannst allt í lagi þó þetta hefði gerst í eitt skipti, ekki mikið mál.  Í gær var ég svo kominn með um 650 heimsóknir fyrir vikuna en þegar ég lít á teljarann í dag er þessi tala komin niður í 512.  Hvernig stendur á þessu?  Hvernig stendur á því að heimsóknir á síðuna mína hafa dregist saman um tæpar 150 heimsóknir á einum sólarhring?  Þ.e. uppsafnaðar heimsóknir fyrir vikuna.  Samkvæmt minni stærðfræðikunnáttu ætti það ekki að vera hægt.

Hafa einhverjir aðrir lent í þessu? Ég sé ekki alveg tilganginn með að fylgjast með þessu ef þetta er öll nákvæmnin.....

 


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég skil talninguna sem svo að þetta er uppsafnað síðustu 7 daga, sem sagt að talan breytist á degi hverjum. Frá þriðjudegi síðustu viku til loka mánudags þessarar viku, frá miðvikudegi til loka þriðjudags o.s.frv. ?

Páll (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 10:44

2 identicon

Þetta þýðir einfaldlega að það hafa fleiri heimsótt þig fyrir átta dögum heldur en í dag. Ekkert dularfullt við það.

Friðrik (IP-tala skráð) 12.2.2007 kl. 11:05

3 Smámynd: Sigfús Þ. Sigmundsson

Já, ég skil það líka þannig.  En er þá ekki skrýtið að þessi tala standi í 650 í gær en er 512 í dag?

Sigfús Þ. Sigmundsson, 12.2.2007 kl. 11:06

4 Smámynd: Sigfús Þ. Sigmundsson

Ok, sennilega er þetta þá þannig að talið er viku aftur í tíma hverju sinni.  Þannig að t.d. ef fjöldi heimsókna hefur verið mjög lítill fyrir akkúrat viku en verið óvenju há daginn þar á undan þá lækkar talan.  Held að ég sé að ná þessu núna ;)

Sigfús Þ. Sigmundsson, 12.2.2007 kl. 12:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Höfundur

Sigfús Þ. Sigmundsson
Sigfús Þ. Sigmundsson
Stjórnmálafræðingur frá H.Í. og er á lokasprettinum í MPA námi í sama skóla.

Spurt er

Á Ísland að hefja aðildarviðræður við ESB?

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (17.5.): 1
  • Sl. sólarhring: 2
  • Sl. viku: 17
  • Frá upphafi: 33211

Annað

  • Innlit í dag: 1
  • Innlit sl. viku: 17
  • Gestir í dag: 1
  • IP-tölur í dag: 1

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband